Hvað er osteópatía og hvernig getur hún hjálpað?

Osteópatía er heildræn meðferðaraðferð sem miðar að því að greina og meðhöndla stoðkerfisvandamál í líkamanum, þar á meðal í vöðvum, liðum og taugakerfinu. Meðferðin byggir á þeirri hugmynd að líkaminn starfi sem ein heild og að ójafnvægi á einum stað geti haft áhrif á líðan og virkni annars staðar í líkamanum.
Í osteópatíu er lögð áhersla á að skilja líkamann á dýpra stigi og finna rót vandans, fremur en að meðhöndla eingöngu einkenni. Hver meðferð er einstaklingsmiðuð og aðlöguð að þörfum, sögu og líðan hvers skjólstæðings, með það að markmiði að stuðla að betri hreyfigetu, minni verkjum og aukinni vellíðan til lengri tíma.
Osteópatar nota fjölbreyttar handvirkar aðferðir við greiningu og meðhöndlun. Þar á meðal eru vefja- og liðteygjur, liðlosun með eða án hnykkinga, nudd og aðrar mjúkar eða markvissar meðferðaraðferðir. Val á aðferðum fer alltaf eftir þörfum hvers og eins og er meðferðin framkvæmd af virðingu fyrir líkama og þægindum skjólstæðings.
Auk handvirkrar meðferðar leggja osteópatar ríka áherslu á fræðslu og ráðgjöf. Skjólstæðingar fá leiðbeiningar um æfingar, líkamsbeitingu og aðra þætti sem geta stutt við bataferlið og hjálpað til við að koma í veg fyrir endurkomu einkenna. Markmiðið er að virkja einstaklinginn sjálfan í eigin bata og stuðla að betri líkamsvitund.
Algeng stoðkerfisvandamál sem leitað er til osteópata vegna eru meðal annars:
höfuðverkir og spenningshöfuðverkir
háls- og herðaverkir
bakverkir, með eða án leiðandi verkja
íþróttameiðsl
verkir, stífleiki eða skert hreyfigeta í liðamótum
Osteópatía hentar fólki á öllum aldri – ungum sem öldnum – og getur verið góð leið fyrir þá sem vilja bæta heilsu sína, draga úr verkjum eða stuðla að betra jafnvægi í líkamanum. Meðferðin miðar að því að styðja við náttúrulega getu líkamans til að jafna sig og ná sem bestum árangri í daglegu lífi.