top of page
IMG_0898 2.heic

Hver er Diljá?

Ég heiti Diljá og er uppalin í Grafarvogi. Ég starfa sem osteópati hjá Sigma Heilsu í Garðabæ og er einnig fimleikaþjálfari hjá Fjölni. Ég hef mikinn áhuga á hreyfingu, heilsu og því að hjálpa fólki að bæta líðan sína í daglegu lífi.

Ég hef alltaf verið mikið í kringum hreyfingu og íþróttir og æfði fimleika frá barnæsku fram á menntaskólaaldur. Snemma kviknaði áhugi minn á mannslíkamanum og íþróttum og var ég lengi með það markmið að læra íþróttafræði.

Árið 2017 slasaðist ég í æfingaferð á Ítalíu þar sem ég hlaut hálsáverka sem leiddu til viðvarandi verkja í hálsi og baki. Ég leitaði til kírópraktors og sjúkraþjálfara yfir nokkra mánuði, sem hjálpaði að einhverju leyti, en ekki nægilega til að ég næði fullri bata og gat því ekki haldið áfram í fimleikum.

Eftir áramótin fór ég til osteópata og eftir fyrsta tímann fann ég greinilegan mun. Það var á þeim tímapunkti sem ég ákvað að ég vildi sjálf verða osteópati. Ég var forvitin um að skilja betur hvað væri verið að gera í meðferðinni og það kveikti enn frekar áhuga minn á faginu.

Ég útskrifaðist úr Kvennaskólanum í Reykjavík af náttúruvísindasviði og hélt síðan til Svíþjóðar þar sem ég lauk fjögurra ára námi í osteópatíu við Skandinaviska Osteopathögskolan. Ég bjó í Gautaborg í þrjú ár og starfaði samhliða náminu sem nuddari, sem gaf mér dýrmæta reynslu.

 

Á fjórða og síðasta ári námsins flutti ég aftur til Íslands og starfaði samhliða náminu sem osteópata nemi, þar sem ég flaug mánaðarlega til Svíþjóðar í lotur. Ég útskrifaðist sem osteópati í júní 2025.

Síðustu tvö ár hef ég starfað með meistaraflokki kvenna í körfubolta hjá Fjölni, þar sem ég sinni meðferð og stuðningi bæði á æfingum og leikjum.

Ég hef starfað sem fimleikaþjálfari í um 10 ár og er með dómararéttindi í áhaldafimleikum. Á þessum árum hef ég þjálfað börn og unglinga frá 2–16 ára aldri, allt frá krílahópum upp í keppnishópa. Þessi bakgrunnur hefur gefið mér dýrmæta innsýn í hreyfingu, þjálfun og endurhæfingu barna og nýtist mér mikið í starfi mínu sem osteópati. Ég starfaði einnig sem siglingarleiðbeinandi í nokkur sumur hjá Siglunesi, þar sem ég öðlaðist dýrmæta reynslu í kennslu, ábyrgð og vinnu með börnum og unglingum í útivist og hreyfingu. 

Í frítíma mínum finnst mér gaman að fara á snjóbretti, sigla, prjóna og vera á hreyfingu. Það fer þó eftir árstíðum hvað er í boði.

bottom of page