Afhverju ætti barnið mitt að fara til osteópata?

Margir tengja osteópata við fullorðna með bakverki eða líkamleg vandamál– en sannleikurinn er sá að börn geta líka haft gríðarlegan ávinning af osteópatíu.
Börn vaxa hratt, prófa nýjar hreyfingar og setja oft mikið álag á líkamann, hvort sem er í íþróttum, leikjum eða daglegri hreyfingu. Þetta getur valdið spennu, ójafnvægi og smávægilegum áverkum sem við tökum ekki alltaf eftir – en geta haft áhrif á líkamsbeitingu, orku og vellíðan.
Mörg börn finna fyrir:
spennu í vöðvum
ójafnvægi í hreyfingum
óútskýrðri þreytu
Osteópatar nota mjúkar og fjölbreyttar aðferðir sem styðja við líkamsstöðu, liðferla og hreyfigetu – og hjálpa líkamanum að ná betra jafnvægi.
Regluleg skoðun og meðferð getur:
Bætt líkamsvitund
Minnkað spennu
Hjálpað til við að koma í veg fyrir meiðsli
Stutt við heilbrigðan þroska og vellíðan
Viltu vita hvort barnið þitt gæti notið góðs af osteópatíu? Bókaðu tíma í dag – ég tek hlýlega á móti ykkur