Um mig
​Ég heiti Diljá Kristjánsdóttir
​Ég útskrifaðist sem osteópati sumarið 2025 frá Skandinaviska Osteopathögskolan í Gautaborg, Svíþjóð eftir fjögurra ára nám. Ég bjó í Gautaborg í þrjú ár og flaug á milli Íslands og Svíþjóða á fjórða og síðasta árinu. Á meðan náminu stóð starfaði ég einnig sem nuddari á nuddstofu í Gautaborg, sem gaf mér dýrmæta reynslu.
Ég æfði fimleika þegar ég var yngri og hef þjálfað fimleika í um 10 ár. Þessi bakgrunnur hefur mótað skilning minn á á hreyfingu, líkamsvitund og endurhæfingu, jafnframt því að hafa mikil áhrif á samskipti.
​Ég hef ávallt haft brennandi áhuga á heilsu, hreyfingu og mannslíkamanum - og brenn fyrir því að hjálpa fólki að ná jafnvægi, draga úr verkjum og bæta líðan í daglegu lífi.

Meðhöndlun

Fyrsta heimsókn
Í fyrsta tíma er tekin sjúkra- og verkjasaga til að fá góða heildarmynd. Í framhaldinu fer fram greining til að finna orsök vandans. Að lokum er meðferðin sniðin að þörfum hvers skjólstæðings.

Endurkoma
Endurkoma er fyrir þá sem hafa lokið fyrsta tíma. Í þessum tíma er haldið áfram með meðferð út frá fyrri greiningu og þróun einkenna.
